Innsendingar í Sögur

Börn í 3. - 7. bekk geta sent inn frá 1. júní - 15. nóvember ár hvert:
lag og texta, leikritahandrit, listaverk, smásögu eða stuttmyndahandrit.
Opið er fyrir innsendingar í Sögum fyrir börn í 3. - 7. bekk. Dómnefnd fær afhendar innsendingarnar án persónurekjanlegra upplýsinga og velur efnilegustu innsendingarnar í öllum flokkum.
Við mælum með að lesa vel upplýsingarnar hér fyrir neðan, styðjast við gátlistann og horfa á kennslumyndböndin með leiðbeiningum sem fylgja hverjum flokki.
Í hverjum flokki getur þú hlaðið niður æfingablaði sem hjálpar þér
að koma hugmyndinni þinni af stað!
Fyrir kennara og foreldra:
Hér má nálgast öll æfingablöð Sagna á einum stað. Blöðin eru ætluð til að auðvelda undirbúning fyrir innsendingar í Sögur.
Lag og texti
-
Lag og texti eiga bæði að vera frumsamin
-
Lagið má fjalla um hvað sem er
-
Lagið á að vera um það bil 1 -3 mínútur í flutningi
-
Ef lag er sent inn án undirleiks væri frábært að heyra smell í fingrum eða eitthvað sem gefur til kynna taktinn í laginu
-
Æskilegt er laginu sé skilað á mp3-hljóðskrá
-
Texti lagsins skal fylgja með á Word eða PDF skjali
-
Textinn má ekki vera handskrifaður
-
Þau lög sem eru valin verða útsett og tekin upp í hljóðveri RÚV með aðstoð fagfólks
-
Valinn er atvinnusöngvari til að flytja lagið
-
Sigurlögin eru flutt á verðlaunahátíðinni og gefin út á Spotify
-
Þú getur smellt hér til að hlaða niður æfingablaði sem hjálpar þér að búa til lag og texta!
Hér til hliðar er leiðbeiningamyndband um hvernig maður skrifar lag og texta sem við hvetjum þig til að horfa á.
Leikritahandrit
-
Leikritahandrit er saga sem er leikin af leikurum
-
Leikritahandritið má fjalla um hvað sem er
-
Í handritinu er mikilvægt að hafa:
áhugavert sögusvið - hvar gerist leikritið?
sögupersónur - hverjir eru í leikritinu?
spennandi söguþráð - hvað gerist í leikritinu? -
Höfundur má gjarnan hafa óvenjulegt sögusvið
-
Þú mátt gjarnan hafa margar (10-15) sögupersónur
-
Lengd handritsins á að vera um 4-10 blaðsíður
-
Leikritahandrit er ekki einn langur texti
-
Leikritahandrit skiptist í samtöl og lýsingar
samtöl er þegar persónur tala saman
lýsingar eru lýsing á aðstæðum eða atburðum -
Handritið má ekki vera handskrifað
-
Mikilvægt er að skila handritinu inn á Word eða PDF skjali
-
Handritin þurfa ekki að vera fullkomin eða alveg tilbúin
-
Sigurhandritin verða sett á svið í Borgarleikhúsinu og eru leikin af nemendum á lokaári Leiklistarskóla Borgarleikhússins
-
Þú getur smellt hér að hlaða niður æfingablaði sem hjálpar þér að búa til handrit að leikriti!
Hér til hliðar er leiðbeiningamyndband um hvernig maður skrifar leikritatandrit sem við hvetjum þig til að horfa á.
Listaverk
-
Listaverkið má fjalla um hvað sem er
-
Verkið þarf að vera frumgerð og hugverk listamannsins
-
Börn eru hvött til þess að hugsa út fyrir tvívíðan flöt og segja sína sögu í gegnum fjölbreytta miðla myndlistarinnar -
t.d. innsetningar, vídeóverk, skúlptúr eða gjörninga -
Listaverk getur verið nánast hvað sem er, ekki bara teikningar eða málverk þótt það sé ekki útilokað
-
Listaverkið þarf ekki að vera fullgert á nokkurn hátt, skýr hugmynd að listaverki er nóg
-
Tillögu að verki má skila inn í textaformi þar sem fram kemur útskýring á verkinu og lýsing á mögulegri útkomu
-
Tillögu má senda inn sem skissur (teikningar) að hugmynd
-
Í tillögu þurfa að koma fram hugmyndir/óskir um efni og umgjörð, mögulega stærð verksins og hugsunina eða söguna að baki
-
Verkinu skila á Word eða sem PDF skjali
-
Vídeóverkum og öðrum nýmiðlum skal einnig skila á pdf formi.
-
Ef umsækjandi hefur þegar tekið upp myndbandsefni, skal skila inn textalýsingu á innihaldi myndbandsins og ramma/skjáskoti.
-
Sigurvegari fær aðstoð listamanns og sérfræðinga safnsins við að fullgera listaverkið sitt inni í sýningarrými Listasafns Reykjavíkur.
-
Þú getur smellt hér til að hlaða niður æfingablaði sem hjálpar þér að búa til listaverk!
-
Smásaga er stutt, skálduð saga
-
Hún má fjalla um hvað sem er
-
Hún má vera á bilinu 400-800 orð
-
Það má ekki skila inn handskrifaðri sögu
-
Mynd sem lýsir atviki í sögunni, þarf að fylgja, hún verður notuð til að skreyta söguna þína
-
Myndin þarf að vera á rafrænu formi og í 300 punkta upplausn
-
Mikilvægt er að skila smásögunni inn á Word eða PDF skjali
-
Höfundar sem eiga sögur sem valdar eru af dómnefnd fá tækifæri til að sitja með teiknara og rithöfundi sem gefa þeim góð ráð
-
Sögurnar eru gefnar út rafrænt af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu á vorin
-
Nokkur eintök fara í prentun og fá höfundar bókina senda bæði heim til sín og á skólabókasafnið sitt
-
Þú getur smellt hér til að hlaða niður æfingablaði sem hjálpar þér að búa til smásöguna þína!
Hér til hliðar er leiðbeiningamyndband um hvernig maður skrifar smásögu sem við hvetjum þig til að horfa á.
-
Stuttmynd er stutt bíómynd
-
Stuttmynd er leikin fyrir myndavél
-
Stuttmynd er tekin upp í mörgum bútum og sett saman
-
Stuttmyndir eru sýndar í sjónvarpi eða í kvikmyndahúsum
-
Hún má fjalla um hvað sem er
-
Handritið á að vera um það bil 4-5 blaðsíður að lengd
-
Stuttmyndahandrit eru ekki einn langur texti
-
Textinn skiptist í samtöl og lýsingar
-
Handritið má ekki vera handskrifað
-
Mikilvægt er að skila handritinu inn á Word eða PDF skjali
-
Í handritinu er mikilvægt að hafa:
áhugavert sögusvið - hvar gerist stuttmyndin?
áhugaverðar sögupersónur - hverjir eru í stuttmyndinni? spennandi söguþráð - hvað gerist í stuttmyndinni? -
Sigurhandritin eru unnin áfram af fagfólki á RÚV og verður stuttmyndin aðgengileg á spilara KrakkaRÚV
-
Þú getur smellt hér til að hlaða niður æfingablaði sem hjálpar þér að búa til handrit að stuttmynd!
Hér til hliðar er leiðbeiningamyndband um hvernig maður skrifar stuttmyndahandrit sem við hvetjum þig til að horfa á.





