top of page
1300xlistaverk.jpg

Listaverk

Dómnefnd á vegum Listasafns Reykjavíkur fær afhentar tillögur að listaverkum án persónurekjanlegra upplýsinga og velur efnilegustu tillöguna sem verður svo sýnd sem fullbúið listaverk í Listasafni Reykjavíkur.

Börnin sem eiga sigurtillöguna fá aðstoð starfandi listamanns og sérfræðinga Listasafns Reykjavíkur við að útfæra listaverkið sem verður sýnt í einu safnhúsa Listasafns Reykjavíkur, í Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum eða Ásmundarsafni.

​

Börn eru hvött til þess að hugsa út fyrir tvívíðan flöt og segja sína sögu í gegnum fjölbreytta miðla myndlistarinnar - t.d. með innsetningum, vídeóverkum, skúlptúrum eða gjörningum.

​

Langar þig að skapa þitt eigið listaverk?
Smelltu hér til að hlaða niður æfingablaði sem hjálpar þér að þróa hugmynd að listaverki til að senda inn í Sögur.


Börnin sem eiga sigurverk fá Svaninn, verðlaunagrip Sagna, sem veittur er á Sögum - Verðlaunahátíð barnanna í beinni útsendingu hjá RÚV að vori.

bottom of page